spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaLithái í Hafnarfjörðinn

Lithái í Hafnarfjörðinn

Haukar hafa samið við Arvydas Gydra fyrir komandi átök í Bónusdeild karla.

Arvydas er 34 ára 205 cm miðherji frá Litháen, en hann kemur til Hauka frá Flyers Wels í Austurríki. Þar skilaði hann 13 stigum og 5 fráköstum að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.

“Gydra tikkar í boxin sem við viljum fá í fjarkanum okkar í vetur. Hann er hávaxinn með reynslu úr mismunandi deildum Evrópu, staðið sig vel alls staðar og búið sér til flottan feril byggt á því að vera framúrskarandi þriggja stiga skytta” segir Mate Dalmay þjálfari liðsins.

Fréttir
- Auglýsing -