Komið var að 16. umferð Bónusdeildarinnar í kvöld og ljóst að þeim fer fækkandi stigunum sem eftir eru í pottinum. Grindvíkingar sitja einir og sér í 4. sætinu en eru þó aðeins einni tröppu fyrir ofan Flækjuna miklu þar fyrir neðan! Þá bölvans víraflækju vilja gulir auðvitað forðast en stigin tvö verða ekki auðsótt fyrir Grindjána enda gestir kvöldsins í Smáranum toppliðið sjálft úr Garðabænum.
Stjörnumenn hafa setið í makindum á toppi deildarinnar allt tímabilið. Norðanmenn eru þó skammt undan svo stigin tvö eru ekki síður eftirsóknarverð fyrir gestina. Við skulum rýna í Kúluna góðu.
Kúlan: ,,Þetta liggur í augum uppi. Toppliðið er toppliðið, því miður engin spenna í kvöld, lokatölur 83-97.“
Byrjunarlið
Grindavík: Mortensen, Óli, Breki, Kane, Bragi Guðmunds
Stjarnan: Shaq, Orri, Febres, Hilmar, Ægir
Gangur leiksins
Toppliðið byrjaði miklu betur í kvöld og byggðu strax upp múrinn góða. Stjörnumenn virtust geta gert bara nákvæmlega það sem þeim sýndist sóknarlega og voru sömuleiðis þéttir varnarlega eins og þeir hafa verið meira og minna allt tímabilið. Valur Orri kom inn af bekknum fyrir Grindvíkinga og dró sína menn af stað, dældi út stoðsendingum og smellti þristi. Einkum Kane lagði honum lið og varnarleikurinn fór batnandi. Að fyrsta leikhluta loknum var allt hnífjafnt, 20-20.
Garðbæingar byrjuðu annan leikhlutann líkt og þann fyrsta og ruku framúr. Jase og Shaq blokkuðu nánast allt sem nálgaðist körfu gestanna og Jase og Hilmar Smári sáu aðallega um stigaskorunina. Jóhann henti í leikhlé um miðjan leikhlutann í stöðunni 23-35. Það breytti litlu fyrir heimamenn, toppliðið er ansi þungvopnað og Orri byrjaði að hleypa af. Forskot Stjörnupilta fór mest í 15 stig, 31-46, en stóð í 13 stigum, 35-48 í hálfleik.
Stjörnupiltar tóku öll völd á vellinum í þriðja leikhluta. Munurinn rauk upp í 20 stig en leikar stóðu 44-64 þegar korter var eftir af leiknum. Valur og Kane voru nánast þeir einu sem voru með lífsmarki hjá Grindjánum á meðan gestirnir efndu til hersýningar og prófuðu öll vopnin. Stjarnan leiddi 54-77 eftir þrjá og úrslit svo gott sem ráðin.
Það var ansi rólegt yfir þessu í fjórða leikhluta og maður hafði á tilfinningunni að Grindvíkingar hafi litið á þetta sem æfingaleik fyrir ,,nýja liðið“ þeirra. Bragi Guðmunds og Arnór voru að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu með liðinu, Lagio Grantsaan tiltölulega nýkominn og nýr Kani væntanlegur. Það er óþarfi að hafa fleiri orð um leikinn, heimamenn gerðu sig aldrei líklega og mjög þægilegur og öruggur 87-108 sigur Garðbæinga niðurstaðan.
Menn leiksins
Hilmar Smári henti niður 30 stigum og bætti við 4 stoðsendingum. Jase Febres var einnig frábær, skoraði 25 stig, tók 11 fráköst og átti 4 blokk.
Kane var langbestur heimamanna, setti 24 stig, tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.
Kjarninn
Næsti leikur Stjörnumanna er gegn Stólunum í Garðabænum og engin hætta á því að leikmenn liðsins mæti bugaðir og þreyttir í þann leik. Létt verk og löðurmannlegt var það í kvöld. Baldur var að vonum sáttur með sína menn eftir leik kvöldsins og kallaði eftir Silfurskeiðinni. Það gæti verið þörf á henni í næsta leik enda má kalla leikinn baráttuna um deildarmeistaratitilinn.
Eins og kemur fram að ofan leit þetta svolítið út eins og æfingaleikur í kvöld. Lið Grindvíkinga er nú að taka miklum breytingum og óneitanlega bratt að ætlast til þess að liðið leggi toppliðið á þessum tímapunkti. En silfurlið síðasta tímabils er nú komið í víraflækjuna miklu – við sjáum á næstu vikum hvort Grindjánum takist að rífa sig lausa úr henni.
Myndasafn (væntanlegt)