Síðustu daga höfum við spurt í könnun hér á Karfan.is hvaða leikmann lesendur telji að hafi staðið sig best allra fyrstu þrjár umferðirnar í Domino´s deild karla. Stjörnumaðurinn Marvin Valdimarsson varð þar hlutskarpastur með 26,88% atkvæða.
Margir voru til kallaðir en hægt var ásamt Marvin að gefa Nonna Mæju atkvæði, Haminn Quaintance, Aaron Broussard, Benjamin Curtis, Asim McQueen, Árna Ragnarssyni og svo var valmöguleikinn Einhver annar einnig í boði.
Valkosturinn Einhver annar varð í 2. sæti með 17,08% atkvæða en tæplega 450 manns kusu að þessu sinni.
Nú er komin inn ný könnun þar sem við spyrjum hver sé besti varnarmaðurinn, Pálína María Gunnlaugsdóttir, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir eða Petrúnella Skúladóttir.