spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaLeikmaður Grindavíkur handtekinn

Leikmaður Grindavíkur handtekinn

Leikmaður Grindavíkur í Subway deild kvenna Charisse Fairley var samkvæmt heimildum Körfunnar handtekin við komu sína aftur til New Jersey er hún fór aftur í landsleikjahléi deildarinnar. Charisse var bókuð þann 2. nóvember í Essex sýslu ríkissins, en samkvæmt upplýsingum Körfunnar er ekkert tekið fram fyrir hvað leikmaðurinn var handsamaður eða hvers eðlis glæpur hennar var.

Samkvæmt forráðamanni er félagið að bíða eftir að leikmaðurinn komi til baka, en fyrir utan það er ekkert frekar gefið út með hvort að félagið vissi af þessari handtöku eða eðli hennar. Næsti leikur Grindavíkur í deildinni er þann 18. nóvember gegn nýliðum Þórs Akureyri í HS Orku höllinni. Grindavík hefur farið afar vel af stað í deildinni þetta tímabilið, þar sem liðið situr nú í 2.-4. sæti með fimm sigra og tvö töp eftir fyrstu sjö umferðirnar.

Fréttir
- Auglýsing -