Fimmta umferð Dominos deildar kvenna fer fram í kvöld með fjórum leikjum. Ljóst er að gríðarlega litlu munar á milli liðana enda einungis tvö stig á milli fyrsta og sjöunda sætisins.
Vesturlandsslagur fer fram í Stykkishólmi í kvöld þar sem heimakonur í Snæfell taka á móti Skallagrím. Liðin sem mættust í undanúrslitum á síðustu leiktíð, Keflavík og Valur mætast í Blue-höllinni.
Botnlið Breiðabliks fær nýliða KR í heimsókn og í Garðabæ fer fram annar nágrannaslagur milli Stjörnunnar og Hauka.
Fjallað verður um leiki dagsins á Körfunni síðar í kvöld.
Leikir dagsins:
Dominos deild kvenna:
Stjarnan – Haukar – kl. 19:15
Keflavík – Valur – kl. 19:15
Snæfell – Skallagrímur – kl. 19:15
Breiðablik – KR – kl. 19:15