spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaLeikir dagsins: Valsarar heimsækja Fjósið

Leikir dagsins: Valsarar heimsækja Fjósið

Tíundu umferð Dominos deildar karla lýkur í kvöld með tveimur spennandi leikjum.

Í Grindavík eru það heimamenn sem fá Hauka í heimsókn, bæði lið eru um miðja deild en Grindavík hefur verið að ná vopnum sínum eftir slaka byrjun. Grindavík getur því jafnað Hauka að stigum með sigri í kvöld en Haukar geta komið sér í góða stöðu með sigri.

Borgnesingar fá Valsara í heimsókn í nokkurskonar botnslag enda liðin í 10. og 11. sæti deildarinnar að mætast. Valur náði í góðan útisigur gegn Breiðablik í síðasta leik fyrir landsleikjahlé en Skallagrímur hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð og kom sá síðasti þann 26. október.

Fjallað verður um leiki kvöldsins á Körfunni í kvöld.

Leikir dagsins:

Dominos deild karla:

Skallagrímur – Valur kl 19:15

Grindavík – Haukar kl 19:15

Fréttir
- Auglýsing -