Í kvöld fer fram fimmta umferðin í Domino´s deild kvenna. Allir fjórir leikir kvöldsins hefjast venju samkvæmt kl. 19:15 og það er toppslagur í boði í Toyota-höllinni þegar efstu lið deildarinnar, Keflavík og Snæfell, mætast í baráttunni um toppsætið. Von er á mögnuðum slag þar sem Kieraah Marlow er mætt aftur til landsins og verður með Snæfell í kvöld!
Bæði Keflavík og Snæfell hafa unnið fjóra fyrstu deildarleiki sína, Keflavík kafsigldi t.d. Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur í síðustu umferð og Snæfell rassskellti Grindavík en Hólmarar hafa síðustu tvo leiki verið án Kieraah Marlow sem var í tímabundnu leyfi af persónulegum ástæðum. Nú er bomban mætt aftur og því allar forsendur fyrir miklum slag í Reykjanesbæ í kvöld.
Leikir kvöldsins
Grindavík-Valur
Keflavík-Snæfell
Haukar-Fjölnir (beint á Haukar TV)
KR-Njarðvík
Þá er einn leikur í drengjaflokki kl. 18:30 þegar Þór Þorlákshöfn/Hamar tekur á móti Val.
Mynd úr safni/ vf.is: Sandra Lind Þrastardóttir og Keflvíkingar verða á heimavelli í kvöld þegar Snæfell mætir í uppgjör toppliðanna.