Í kvöld heldur veislan áfram og nú er það kvennaboltinn sem rúllar. Grindavík og Snæfell eru í þeirri stöðu að getað sópað andstæðingum sínum út úr úrslitakeppninni og tryggt sig í úrslita einvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Grindavík sækir Haukastúlkur heim á Ásvelli og hefjast leikar þar kl 19:15. Á sama tíma í Stykkishólmi leika svo Snæfell og Valur.
Úrslitakeppni 1.deildar kvenna hefst einnig í kvöld þegar Skallgrímur taka á móti KR í fyrsta leik liðana, en liðið á undan að vinna 2 leiki fer upp í úrvalsdeild að ári. Leikurinn er í Borgarnesi og hefst kl 19:15