spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Mikilvægur landsleikur í Portúgal

Leikir dagsins: Mikilvægur landsleikur í Portúgal

Síðasti hluti forkeppni undankeppni Evrópumótsins 2021 hefst í dag hjá Íslenska landsliðinu. Þá mætir liðið Portúgal í Portúgal í mikilvægum leik.

Þetta verður fyrsti leikurinn í þessari þriðju og síðustu umferð forkeppninnar að undankeppni EM 2021. Ísland leikur í riðli með Portúgal og Sviss en það lið sem sigrar riðilinn kemst í undankeppnina sjálfa sem fram fer næstu tvo tímabil. Sviss og Portúgal áttust við á laugardaginn í fyrsta leik riðilsins þar sem Sviss sigraði á heimavelli 77:72.

Leikurinn hefst kl 17:30 að Íslenskum tíma og verður hann í beinni útsendingu á RÚV2.

Leikmannahópur dagsins er eftirfarandi:

Frank Aron Booker · ALM Évreux, Frakkland (Nýliði)
Gunnar Ólafsson · Keflavík (14)
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík (42)
Hlynur Bæringsson · Stjarnan (125)
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (78)
Jón Axel Guðmundsson · Davidson, USA (7)
Hjálmar Stefánsson · Haukar (12)
Martin Hermannsson · Alba Berlin, Þýskaland (65)
Ólafur Ólafsson · Grindavík (32)
Pavel Ermolinskij · KR (69)
Tryggvi Snær Hlinason · Zaragosa, Spánn (33)
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan (57)

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfari: Halldór Fannar Júlíusson
Fararstjóri: Herbert Arnarson
Liðsstjóri: Kristinn Geir Pálsson

Fréttir
- Auglýsing -