Fimm leikir fara fram í Domino's deild karla í kvöld. Höttur mætir Stjörnunni í Garðabæ, ÍR tekur á móti Snæfelli í Hellinum, FSu fær Keflavíkurhraðlestina í heimsókn, Grindavík tekur á móti Haukum og að lokum renna KR-ingar norður á Sauðárkrók til baráttu við Tindastól. Síkið er erfiður heimavöllur og mun þetta vera einskonar eldskírn fyrir KR fyrir úrslitakeppnina. Ægir farinn til Spánar og forvitnilegt verður að sjá hvort og þá hvernig KR-ingar breyta leikskipulagi sínu.
Snæfell og Grindavík eru í baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Allt er svosem opið í Hellinum þar sem Snæfell mæti ÍR en útlit er fyrir erfiðari leik fyrir Grindvíkinga þar sem Haukar eru á mikilli siglingu með 5 sigurleiki í röð, þó ekkert sé útilokað.
Allir leikir hefjast kl. 19:15.