spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Húnarnir og Hraðlestin

Leikir dagsins: Húnarnir og Hraðlestin

Einn leikur fer fram í 32 liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar í kvöld en þá mætast Keflavík b og Njarðvík í næstsíðasta leik þessarar fyrstu umferðar keppninnar. Leikurinn hefst kl. 18:30 í Toyota-höllinni í Keflavík.
 
Þarna mætast Húnarnir í Njarðvík eins og Þórður Helgi Þórðarson a.k.a. Doddi Litli hefur ákveðið að kalla Njarðvíkinga og svo gamla Keflavíkurhraðlestin með kappa á borð við Guðjón Skúlason, Fal Harðarson, Albert Óskarsson, Gunnar Einarsson og Sverri Þór Sverrisson ásamt fleiri gömlum og góðum kempum. Þegar eru tvö b-lið komið áfram í keppninni en það eru KR b og Haukar b, KR b sem í gær lagði 1. deildarlið Breiðabliks og Haukar b sem höfðu betur gegn Víkingi frá Ólafsvík.
 
Mynd úr safni/ Karfan.is spáir því að Falur Harðarson muni amk rífa sig upp í eitt ef ekki fleiri þriggja stiga skot í kvöld. 
Fréttir
- Auglýsing -