Í kvöld verður nóg við að vera í boltanum en þá lýkur níundu umferð í Domino´s deild karla með tveimur leikjum sem vitaskuld hefjast báðir kl. 19:15. KFÍ mætir í heimsókn í Röstina til meistara Grindavíkur og næstheitasta lið landsins, Þór Þorlákshöfn, tekur á móti heitasta liðið landsins, Keflavík. Í 1. deild karla verður einnig mikið við að vera þar sem topplið Vals mætir á Jaðarsbakka og leikur gegn botnliði ÍA.
Þór og Keflavík eru þau lið sem eru á lengstu sigurgöngunni í deildinni í augnablikinu, Þór hefur unnið fjóra síðustu deildarleiki sína og Keflavík síðustu fimm svo það ætti að verða nokkuð kátt í Icelandic Glacial höllinni í kvöld.
Domino´s deild karla í kvöld kl. 19:15
Grindavík – KFÍ (í beinni á Sport TV)
Þór Þorlákshöfn – Keflavík
1. deild karla í kvöld
19:15 Haukar – Reynir Sandgerði
19:15 FSu – Breiðablik
19:15 ÍA – Valur
20:00 Þór Akureyri – Augnablik (í beinni á www.thorsport.is)
Mynd/ [email protected] – Darrel Lewis og Keflvíkingar mæta í Þorlákshöfn í kvöld.