8. umferð Domino's deildar karla lýkur í kvöld með leik FSu og Snæfells í Iðu. Afar mikilvægur leikur fyrir bæði lið upp á innbyrðis baráttu þessara liða komi þau til með að vera í botnslagnum. Snæfell þarf einnig að sigra þennan leik til þess að halda sér í hópi liða í 6.-9. sæti. Annars lenda Snæfellingar í 9.-10. sæti með ÍR-ingum. Leikurinn hefst kl. 19:15.
Í 1. deild karla eru fjórir leikir. Topplið Vals mætir Reyni frá Sandgerði í Vodafonehöllinni en botnlið Ármanns tekur á móti Þór Akureyri. Skallagrímur og KFÍ munu svo eigast við í Borgarnesi en Hamar og Breiðablik mætast í Hveragerði. Hamar-Breiðablik og Skallagrímur-KFÍ hefjast kl. 19:15, Valur-Reynir hefst kl. 19:30 og Ármann-Þór kl. 20:00.