Þrír leikir fara fram í 13. umferð Domino's deild karla í kvöld. Botnslagur ÍR og FSu verður í Hertz hellinum en sigur hjá FSu myndi jafna liðin að stigum í Höllinni. Bæði lið eru að berjast fyrir tilverurétt sínum í efstu deild. Grindvíkingar fara austur til Egilsstaða og mæta þar Hattarmönnum sem náðu í sinn fyrsta sigur í 12. umferðinni, gegn Njarðvík. Njarðvíkingar taka hins vegar á móti Snæfelli í Ljónagryfjunni.
Leikur Hattar og Grindavíkur hefst kl. 18:30 en hinir leikirnir hefjast báðir kl. 19:15.