Í kvöld fer fram stórleikur í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ þegar Keflavík tekur á móti Njarðvík í síðasta leik 8-liða úrslita karla í Poweradebikarnum. Það lið sem hefur sigur í kvöld fer áfram í pottinn með Snæfell, Grindavík og Stjörnunni. Viðureign liðanna hefst á slaginu 19:15 og vissara að mæta tímanlega því þessi lið áttust við á dögunum í epískum deildarslag þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í blálok leiksins.
Fimm leikir fara einnig fram í drengjaflokki í kvöld og einn leikur í 1. deild kvenna þegar Laugdælir taka á móti Breiðablik.