spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaLeikdagar í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla

Leikdagar í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla

Vestri og Hamar munu leika til úrslita um hvort liðið fylgir Breiðablik upp í Dominos deild karla. Í undanúrslitunum lagði Vestri Skallagrím 3-0 á meðan að Hamar vann granna sína frá Selfossi 3-1. Hér fyrir neðan má sjá leikdaga í úrslitaeinvíginu.

Fyrsti leikdagur í úrslitum 1. deildar karla er miðvikudaginn 2. júní. Leikið er þar til annað liðið hefur unnið þrjá leiki. Það félag sem vinnur úrslitaviðureign 1. deildar karla ávinnur sér sæti í úrvalsdeild leiktíðina 2021-2022.

(2) Hamar – (4) Vestri
Leikur 1 – 2. júní 19:15
Leikur 2 – 5. júní kl. 19:15
Leikur 3 – 8. júní kl. 19:15
Leikur 4 (ef þarf) – 11. júní kl. 19:15
Leikur 5 (ef þarf) – 13. júní kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -