spot_img
HomeFréttirLeifur að dæma sinn 39. Reykjanesbæjar rimmu

Leifur að dæma sinn 39. Reykjanesbæjar rimmu

 

Leifur Garðarsson ber höfuð og herðar yfir þá dómara sem hafa dæmt rimmur milli nágrannaliðana Njarðvík og Keflavík.  Í kvöld dæmir Leifur sinn 39. leik milli þessara liða en samkvæmt heimildum er næsti dómari með einhverjar rétt rúma 15 leiki á bakinu í þessari rimmu liðanna.  Leikurinn í kvöld er í TM-Höll þeirra Keflvíkinga og hefst eftir ca korter.  Leifur tekur þar með formlega við toppsætinu í þessum efnum en hann hafði áður jafnað Kristinn Albertsson sem dæmdi á sínum tíma 38 leiki milli Njarðvíkingar og Keflvíkinga. 

Fréttir
- Auglýsing -