spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaLeiddu mest með 37 stigum í öruggum sigri

Leiddu mest með 37 stigum í öruggum sigri

Fjölnir hafði betur gegn ÍA í æfingaleik í Dalhúsum í kvöld, 86-70, en þessa dagana undirbúa bæði lið sig fyrir upphaf deildarkeppni fyrstu deildar karla sem hefst næstu mánaðarmót.

Þrátt fyrir að aðeins hafi munað 16 stigum á liðunum í leikslok var leikur kvöldsins algjör einstefna þar sem heimamenn leiddu mest með 37 stigum. Það forskot byggðu þeir sér að mestu upp á upphafsmínútum leiksins, en fyrsta fjórðung unnu þeir með 29 stigum, 35-7.

Stigahæstur fyrir Fjölni í leiknum var Lewis Diankulu með 22 stig og Arnþór Freyr Guðmundsson var með 17 stig.

Fyrir gestina frá Akranesi var það Lucien Christofis sem var stigahæstur með 16 stig og Kristófer Gíslason og Kinyon Hodges voru með 13 stig hvor.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -