Keflvíkingar hafa tryggt veru sína í úrslitakeppninni líkt og venjulega. Óvenjulega seint voru þeir að því þetta árið en vissulega verða þeir með. Keflvíkingar eru í 8. sæti deildarinnar og sama hvernig fer í síðustu umferð þá munu þeir enda þar. Líklegir mótherjar í fyrstu umferð verða því Haukar en Brynjar Guðlaugsson stuðningsmaður Keflvíkinga er á öðru máli og hefur hann sett upp "skothelt" plan þar sem Keflvíkingar enda að sjálfsögðu sem Íslandsmeistarar.
Brynjar spáir því að í síðustu umferð þá tapi lið hans gegn ÍR í því skyni að koma ÍR í fyrsta sæti deildarinnar og mæta þá þeim í úrslitakeppninni. Þar munu svo Keflvíkingar hnykla vöðva sína og sigra lið ÍR nokkuð örygglega ef marka má orð Brynjars. Í undanúrslitum verða svo Haukar lagðir og í úrslitum mætir Keflavík Tindastól þar sem bikarmeistarar verða lagðir að velli og þar með munu Keflvíkingar rúlla í hús með þann stóra í farteskinu að Sunnubrautinni.
Óhætt að segja að þetta sé ansi skrautleg spá en eins og skáldið sagði, miði er möguleiki.
Næsti leikur er heima á mót ÍR, að sjálfsögðu ætlum við ekki að sigra þann leik, skjótum þeim upp í fyrsta sætið og slátrum þeim í úrslitunum. Mætum svo Haukum í undanúrls. og klárum þetta með léttum sigri á móti Tindastól…
— Brynjar Guðlaugsson (@b_gud) March 6, 2018
Frétt uppfærð: Brynjar ku ekki vera lengur í stjórn KKD. Keflavíkur eins og heimasíða þeirra Keflvíkinga sýnir. Fréttin hefur verið uppfærð og leiðrétt.