Bræðurnir Conner og Cayden Long eru Sports Illustraded Kids of The Year vestra. Á sunnudagskvöld var kjörið kunngjört í New York að viðstöddu frægðarfólki og á meðal þeirra sem steig í pontu var LeBron James sem var hrærður yfir vaskri framgöngu þeirra bræðra sem keppa saman í þríþraut en yngri bróðirinn er einhverfur.
Stjörnuþjálfarinn Mike Krzyzewski sagði við hófið að þeirra bræðra biði skólastyrkur við Duke þegar þeir væru komnir á aldur og LeBron sagði við þá bræður að þeir væru á leið til Miami að hitta liðið. Beyoncé og Jay-Z voru einnig viðstödd en athöfnin, Sports Illustrated Sportsman of The Year, tók óvænta stefnu þegar myndband um framgöngu þeirra bræðra var spilað við hófið. Myndbandið má sjá hér að neðan: