Undir 16 ára drengjalið Íslands vann sinn þriðja leik í röð í dag á Norðurlandamótinu í Kisakallio gegn Eistlandi, 98-63. Liðið því orðið öruggt með að vinna allavegana bronsverðlaun á mótinu, en leikir gegn Svíþjóð á morgun og Finnlandi á sunnudag munu skera úr um hvort liðið nær að vinna fyrstu, önnur eða þriðju verðlaun á mótinu.
Karfan spjallaði við Lars Erik Bragason leikmann Íslands eftir leik í Kisakallio. Lars átti góðan leik fyrir Ísland í dag, skilaði 12 stigum, 5 fráköstum og 3 stolnum boltum á tæpri 21 mínútu spilaðri.