Haukar lögðu heimakonur í Njarðvík í kvöld í öðrum leik úrslitaeinvígis liðanna í Subway deild kvenna, 62-82. Staðan í einvíginu er því jöfn 1-1, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Karfan spjallaði við Láru Ösp Ásgeirsdóttur leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ljónagryfjunni.