spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaLandsliðsmaðurinn færir sig um set á Spáni

Landsliðsmaðurinn færir sig um set á Spáni

Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson hefur samið við San Pablo Burgos fyrir komandi tímabil í Leb Oro deildinni á Spáni. Tilkynnir félagið þetta á samfélagsmiðlum.

Jón Axel kemur til Burgos frá HLA Alicante í sömu deild, en þar átti hann nokkuð gott síðasta tímabil þar sem hann skilaði 12 stigum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -