spot_img
HomeFréttirLandsliðshópurinn klár fyrir Smáþjóðaleikana

Landsliðshópurinn klár fyrir Smáþjóðaleikana

Benedikt Rúnar Guðmundsson þjálfari og Halldór Karl Þórsson aðstoðarþjálfari hans, hafa valið þá 12 leikmenn sem leika fyrir Íslands hönd í landsliði kvenna á Smáþjóðaleikunum 2019 sem fara fram í Svartfjallalandi 27. maí -1. júní. Benedikt og Halldór verða þjálfarar liðsins á leikunum en það er fyrsta verkefni þeirra með liðið. Pálína Gunnlaugsdóttir er einnig í þjálfarateymi liðsins en hún verður ekki með liðinu á Smáþjóðaleikunum.

Íslenska liðið leikur fimm leiki á mótinu gegn liði Möltu, Svartfjallalandi, Lúxemborg, Mónakó og Kýpur á leikunum.
Í liðinu eru tveir nýliðar að þessu sinni, þær Sigrún Björg Ólafsdóttir frá Haukum og Þóranna Kika Hodge-Carr frá Keflavík.
Bryndís Guðmundsdóttir að koma til baka inn í liðið en hún lék síðast landsleik árið 2016.

Í síðustu viku voru 16 leikmenn eftir í æfingahóp og nú hefur lokavalið farið fram og munu eftirtaldir leikmenn skipa landsliðið á leikunum:

Nafn · Félag · (Landsleikir)

Berglind Gunnarsdóttir · Snæfell (21)

Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík (39)

Embla Kristínardóttir · Keflavík (16)

Gunnhildur Gunnarsdóttir · Snæfell (29)

Hallveig Jónsdóttir · Valur (14)

Helena Sverrisdóttir · Valur (70)

Hildur Björg Kjartansdóttir · Celta Vigo, Spánn (25)

Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík (12)

Sigrún Björg Ólafsdóttir · Haukar (Nýliði)

Thelma Dís Ágústsdóttir · Ball State, USA/Keflavík (11)

Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar (10)

Þóranna Kika Hodge-Carr · Keflavík (Nýliði)

Þjálfari: Benedikt Rúnar GuðmundssonAðstoðarþjálfari: Halldór Karl Þórsson

Fréttir
- Auglýsing -