A landslið karla kemur saman í dag til æfinga fyrir komandi verkefni, en áður en að þeir halda til lokamóts EuroBasket 2017 í Finnlandi í endaðan ágúst munu þeir leika tvo æfingaleiki hér heima gegn Belgíu. Þann 27. næstkomandi í Smáranum og 29. á Akranesi. Báðir verða leikirnir sýndir í beinni útsendingu á Sport Tv.
Upphaflega voru 24 leikmenn valdir í hóp Íslands fyrir Eurobasket, en til æfinga í dag mun vanta þá leikmenn/þjálfara sem eru enn með undir 20 ára liðinu á Krít, þá Tryggva Snæ Hlinason, Kára Jónsson og Kristinn Pálsson, ásamt aðstoðarþjálfara liðsins Finn Freyr Stefánsson.
Þá hefur Jón Axel Guðmundsson dregið sig úr hópi landsliðsins, en hann er að jafna sig á meiðslum og mun því ekki taka þátt í æfingahóp sumarsins.
Æfingahópurinn · 23 manna
Axel Kárason · Tindastóll
Brynjar Þór Björnsson · KR
Dagur Kár Jónsson · Grindavík
Elvar Már Friðriksson · Barry University, USA
Gunnar Ólafsson · St. Francis University, USA
Haukur Helgi Pálsson · Cholet Basket , Frakklandi
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Arnór Stefánsson · KR
Kári Jónsson · Drexel University, USA
Kristinn Pálsson · Marist University, USA
Kristófer Acox · KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Martin Hermannsson · Châlon-Reims, Frakklandi
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Pavel Ermolinskij · KR
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Arcos Albacete, Spáni
Sigtryggur Arnar Björnsson · Skallagrímur
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · AE Larissa, Grikklandi
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson · San Pablo Inmobiliaria Burgos, Spáni
*Jón Axel Guðmundsson · Davidson University, USA – meiddur og mun hvíla í sumar