Yngsti Ball bróðirinn lét handalögmálin ráða í leik úrvalsliðs JBA deildarinnar gegn litháíska liðinu Dzukija í gær. Leikurinn var hluti af kynningarferð JBA sem er styttinga á Junior Basketball Association og er hugarfóstur LaVar Ball, föður þeirra bræðra. Atvikið hefst með því að Mindaugas Susinskas, leikmaður litháíska liðsins slær í hnakka LaMelo sem bregst ókvæða við og smellir einum á lúðurinn á andstæðingnum með flötum lófa.
JBA International Tour went wrong in Alytus where LaMelo Ball was involved in a fight with Dzukija forward Mindaugas Susinskas and was ejected from the game. pic.twitter.com/ckFD9YNtF9
— Donatas Urbonas (@Urbodo) October 1, 2018
Þeir sem þekkja til Dave Chappelle kunna eflaust að meta brandarann í þessu tísti.
LaMelo Ball doing his best Rick James impersonation with the Lithuanian Charlie Murphy. pic.twitter.com/JYos8uBLnI
— David Astramskas (@redapples) October 1, 2018