spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaLágu aftur gegn Antwerp

Lágu aftur gegn Antwerp

Styrmir Snær Þrastarson og Belfius Mons máttu þola tap í kvöld í öðrum leik sínum gegn Antwerp Giants í 16 liða úrslitum úrslitakeppni BNXT deildarinnar í Hollandi/Belgíu, 71-86. Antwerp unnu seríuna því 2-0 og mæta sigurvegara einvígis Limburg United og Kangoeroes í næstu umferð.

Styrmir átti fínan leik í kvöld þrátt fyrir tapið, lék 31 mínútu og skilaði 12 stigum, 3 fráköstum og 2 stoðsendingum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -