Íslandsvinurinn Kyrie Irving gæti hugsanlega spilað gegn Lakers í kvöld en kappinn hefur verið á hliðarlínunni síðan 17. nóvember þegar hann FINGURbrotnaði í leik gegn Dallas. Kappinn spilaði hinsvegar leikinn gegn 76ers daginn eftir en þá kom í ljós að fingurinn væri brotinn.
”Þetta hefur verið erfitt fyrir mig. En ég nýti tímann vel og reyni að skilja leikinn betur frá nýju sjónarhorni. En ég hlakka til að komast aftur í búning.” sagði Irving við miðla vestra. Lið CAVS hefur unnið aðeins 2 af síðustu 11 leikjum síðan Irving meiddist og það munnar vissulega um þau tæpu 23 stig og 6 stoðsendingar sem hann framleiðir á leik.