spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaKynna til sögunnar nýjan leikmann

Kynna til sögunnar nýjan leikmann

KR hefur boðað til blaðamannafundar seinna í dag þar sem félagið mun kynna til sögunnar nýjan leikmann. Fundurinn verður í félagsheimili félagsins, en ekkert er tekið fram með hvaða leikmann KR muni kynna til leiks.

Eftir 67 ára samfleytta sögu í efstu deild féll KR úr deild þeirra bestu tímabilið 2022-23. Félagið fór þó beint aftur upp úr fyrstu deildinni á síðasta tímabili, þar sem liðið tapaði aðeins tveimur leikjum á tímabilinu og vann fyrstu deildina nokkuð örugglega. Þeir munu því í fyrsta skipti vera nýliðar í úrvalsdeild í fyrsta skipti á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -