Búið er að velja og boða 26 leikmenn til fyrstu æfinga fyrir landslið kvenna en æfingarnar fara fram næstu helgi 2.-4. maí. Verkefni sumarsins verða tveir æfingaleikir gegn landslið Danmerkur hér heima 9. og 10. júlí og svo Evrópukeppni kvenna í C-deild í Austurríki 14.-19. júlí. www.kki.is greinir frá.
Æft verður föstudag og tvisvar á laugardaginn á Ásvöllum og svo á sunnudag í Smáranum.
Ívar Ásgrímsson þjálfari hefur fengið til liðs við sig Margréti Sturlaugsdóttur sem aðstoðarþjálfara en Margrét er reyndur þjálfari yngri landsliða KKÍ og fyrrum landsliðsleikmaður Íslands.
Eftirfarandi leikmenn mæta til leiks um helgina og eru í æfingahópnum:
Snæfell
Hildur Björg Kjartansdóttir
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
Hildur Sigurðardóttir
Helga Hjördís Björgvinsdóttir
Eva Margrét Kristjánsdóttir
Haukar
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Margrét Rósa Hálfdanardóttir
Auður Íris Ólafsdóttir
Íris Sverrisdóttir
Lovísa Björt Henningsdóttir
Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir
Sara Rún Hinriksdóttir
Sandra Lind Þrastardóttir
Njarðvík
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir
Valur
Guðbjörg Sverrisdóttir
Hallveig Jónsdóttir
Ragna Margrét Brynjarsdóttir
Kristrún Sigurjónsdóttir
KR
Bergþóra Holton Tómasdóttir
Sigrún Sjöfn Ámundardóttir
Hamar
Fanney Lind Guðmundsdóttir
Marín Laufey Davíðsdóttir
Grindavík
Pálína Gunnlaugsdóttir
Ingibjörg Jakobsdóttir
María Ben Erlingsdóttir
DVTK Miskolc
Helena Sverrisdóttir
Mynd/ [email protected] – Ísfirðingurinn ungi, Eva Margrét Kristjánsdóttir, hefur verið boðuð á æfingar með A-landsliði Íslands.