spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaKV boðin þáttaka í 1.deildinni

KV boðin þáttaka í 1.deildinni

Liði KV hefur verið boðin þáttaka í fyrstu deild karla á komandi tímabili. Þegar keppni var hætt í mars vegna Covid-19 var liðið efst A liða í annarri deildinni.

Á síðasta tímabili voru aðeins níu félög í fyrstu deild karla, því er ekki ráðgert að senda eitt lið niður fyrir sæti þeirra. Heldur væri deildin með tíu liðum á næsta tímabili.

Samkvæmt heimildum hefur félagið ekki enn svarað boðinu, en skráningu í efstu tvær deildir karla og kvenna lýkur 31. maí, svo að niðurstaða ætti að verða ljós fyrir það.

KV er staðsett í Vesturbæ Reykjavíkur og er að miklu leyti samsett úr efnilegum leikmönnum uppöldum hjá KR, en 10 þeirra fengu félagaskipti yfir í október síðastliðnum.

Fréttir
- Auglýsing -