spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaKróatískur miðherji til KR

Króatískur miðherji til KR

Nýliðar KR hafa samið við Vlatko Granic fyrir komandi leiktíð í Bónus deild karla.

Vlatko er 30 ára króatískur miðherji sem kemur til liðsins frá Ítalíu, en síðan hann kláraði háskólaferil sinn með Loyola í Bandaríkjunum hefur hann leikið fyrir félög á Ítalíu, í Tékklandi, Bretlandi, Búlgaríu, Slóvakíu og í heimalandinu Króatíu. Á síðasta tímabili lék hann með Ristopro Fabriano í ítölsku B-deildinni, en þar var hann með 12 stig og 6 fráköst í leik.

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari meistaraflokks karla “Ég er mjög ánægður að fá Vlatko í KR. Hann kemur með hæð og reynslu í liðið og er fjölhæfur leikmaður sem getur nýst okkur á margan hátt. Ég tel að hann muni passa vel inn í þann góða hóp sem við erum með.”

Fréttir
- Auglýsing -