spot_img
HomeFréttirKristrún, Unnur og Ifeoma afgreiddu Keflavík

Kristrún, Unnur og Ifeoma afgreiddu Keflavík

22:55 

{mosimage}

 

(Kristrún Sigurjónsdóttir átti góðan leik með Haukum í kvöld)

 

 

Haukakonur leiða úrslitaeinvígið 1-0 í Iceland Express deildinni eftir 87-78 sigur á Keflavík að Ásvöllum í kvöld. Sigurinn í kvöld var 27. heimasigur Hauka í röð og ljóst að Ásvellir eru þeirra sterkasta vígi og sér ekki fyrir endan á heimasigrum Íslandsmeistaranna með þessu áframhaldi. Haukar burstðu Keflavík í frákastabaráttunni og þar stóð hnífurinn í kúnni. Keflavík var alltaf inni í leiknum en náðu ekki að brjóta ísinn eins og sagt er og því fóru Haukakonur með góðan sigur af hólmi.

 

Bryndís Guðmundsdóttir gerði fyrstu stig leiksins og kom gestunum í 0-2 en Haukar svöruðu þá með 8 stigum í röð. Keflavík náði þó að jafna metin að nýju í 8-8 en við það tóku Kristrún Sigurjónsdóttir og Ifeoma Okonkwo leikinn í sínar hendur og gerðu næstu 10 stig Hauka og þar voru tvær þriggja stiga körfur frá Kristrúnu sem vógu þungt. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 26-20 Haukum í vil en Bryndís Guðmundsdóttir fór snemma í fyrsta leikhluta á bekkin því hún var komin með tvær villur. Skotnýting Keflavíkur í upphafsleikhlutanum var afleit og þá bætti ekki úr skák að liðið virtist lítinn áhuga sýna í sóknarfráköstum.

 

Keflavík skipti yfir í svæðisvörn í upphafi annars leikhluta og Haukar svörðu með því að gera sex fyrstu stigin í 2. leikhluta og staðan 32-20 fyrir Hauka. Heimamenn bættu í og í stöðunni 42-26 var eins og Haukaliðið teldi sigurinn í höfn og Íslandsmeistararnir fóru að slaka á. Keflavík pressaði vel á Hauka og unnu nokkra góða bolta sem gáfu körfur og söxuðu jafnt og þétt á forskot heimamanna. Takesha Watson fór mikinn í áhlaupi Keflavíkur og stal hverjum boltanum af öðrum. Þegar um ein og hálf mínúta var til hálfleiks náðu Keflvíkingar að minnka muninn í 43-41 og höfðu þá gert 15 stig gegn einu frá Haukum. Liðin gengu svo til hálfleiks í stöðunni 46-44 fyrir Hauka og góður lokasprettur gestanna gaf fín fyrirheit fyrir síðari hálfleikinn.

 

Sigrún Ámundadóttir gaf tóninn strax í upphafi þriðja leikhluta með þriggja stiga körfu fyrir Hauka og staðan 49-44. Nokkur spennuskjálfti virtist hreiðra um sig í liðunum sem skoruðu lítið fyrstu fjórar mínútur leikhlutans. Haukar höfðu þó frumkvæðið en Birna Valgarðsdóttir minnkaði muninn í 55-50 þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum. Skömmu síðar fékk Bryndís Guðmundsdóttir sína fjórðu villu í liði Keflavíkur en hún átti sér ekki viðreisnar von í kvöld og var lengi frá sökum villuvandræða sinna og reyndist það Keflvíkingum dýrkeypt að geta ekki nýtt hennar krafta. Staðan að loknum þriðja leikhluta var 61-55 Haukum í vil.

 

{mosimage}

 

Unnur Tara Jónsdóttir átti glimrandi lokaleikhluta fyrir Hauka í kvöld en hún hrifsaði til sín fjöldan allan af sóknarfráköstum og var dugleg að hreyfa sig án boltans svo bakverðir Hauka áttu ekki í neinum vandræðum með að finna hana opna undir Keflavíkurkörfunni. Sóknarleikur Keflavíkur fór á kafla allur í gegnum Maríu Ben Erlingsdóttur og gaf það vel en svo hættu Keflvíkingar að leita að henni í teignum sem reyndist þeim dýrkeypt því aðrir leikmenn liðsins voru ískaldir í snið-,teig- og þriggja stiga skotum í kvöld.

 

Haukar gerðu vel í 4. leikhluta að halda Keflavík frá sér og höfðu að lokum nokkuð öruggan 87-78 sigur en leikurinn í heild var góð skemmtun og verða næstu leikir liðanna ekkert síðri svo það er um að gera að fjölmenna í Sláturhúsið á laugardag kl. 16:00.

 

Atkvæðamest í liði Keflavíkur í kvöld var TaKesha Watson með 33 stig en hún var sterk á vítalínunni í kvöld og hitt úr 17 af 19 vítaskotum sínum. Birna Valgarðsdóttir gerði 13 stig í leiknum en Keflavíkurliðið átti hræðilegan dag við þriggja stiga línuna þar sem þær tóku 16 skot en ekkert þeirra komst í gegnum körfuhringinn.

 

Hjá Haukum voru þær Kristrún Sigurjónsdóttir, Ifeoma Okonkwo og Unnur Tara Jónsdóttir allar með 18 stig en Ifeoma tók auk þess 18 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Unnur Tara fór hamförum í fjórða leikhluta þar sem hún gerði 14 stig og tók 6 fráköst í leikhlutanum og þar með einu fleiri frákast en allt Keflavíkurliðið tók í leikhlutanum. Unnur lauk leik með 18 stig og 7 fráköst.

 

Gangur leiksins

8-8, 22-15,26-20

30-20,39-26,46-44

53-44, 55-50, 61-55

70-58,76-69, 87-78

 

www.vf.is

 

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -