Deilar- og bikarmeistarar Vals hafa framlengt samningi sínum við framherjann Kristófer Acox til næstu tveggja ára.
Kristófer kom til Vals fyrir tveimur tímabilum og hefur síðan unnið alla titla sem í boði eru með félaginu, en á síðustu leiktíð skilaði hann 14 stigum, 9 fráköstum og var með tæpa 20 framlagsstig að meðaltali í leik.