spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaKristófer og Ragnar Jósef til Hamars

Kristófer og Ragnar Jósef til Hamars

Hvergerðingar hafa samið við leikmennina Kristófer Gíslason og Ragnar Jósef Ragnarsson um að leika með liðinu út tímabilið.

Ragnar er 21. árs uppalinn KR-ingur en kemur frá Blikum. Ragnar var stór partur af liði Blika sem tryggði Dominos deildar sæti í fyrra eftir einvígi gegn einmitt Hamri. Ragnar kemur á venslasamning út tímabilið

Ragnar skoraði í fyrra rúmlega 10 stig að meðaltali í leik en hefur spilatíminn verið minni í vetur og farið úr 23 í um 4.

Kristófer Gíslason hefur einnig samið við liðið en hann er 22 ára og átti frábæran vetur með liði Skallagríms í fyrra sem vann 1.deildina í fyrra, skoraði að meðaltali 13.7 stig og tók 4.8 fráköst.

Kristófer hefur verið í minna hlutverki það sem af er vetri og skorað 2.9 stig á tæpum 10 mínutum það sem af er vetri með Borgnesingum

Fyrsti leikur þeirra félaga verður strax á morgun gegn toppliði Þórs á Akureyri fyrir Norðan.

Fréttir
- Auglýsing -