KR sigraði Keflavík fyrr í kvöld með einu stigi, 76-77, í fyrsta leik 8 liða úrslitaeinvígis liðanna í úrslitakeppni Dominos deildar karla. KR því komið með yfirhöndina í einvíginu, 1-0, en næsti leikur liðanna er komandi mánudag í DHL Höllinni í Vesturbænum.
Karfan spjallaði við leikmann KR, Kristófer Acox, eftir leik í Keflavík.