spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaKristófer á leiðinni aftur á völlinn

Kristófer á leiðinni aftur á völlinn

Einn besti leikmaður Bónus deildarinnar á síðustu árum leikmaður Íslandsmeistara Vals Kristófer Acox staðfesti endurkomu sína á völlinn í sjónvarpsþættinum Bónus Körfuboltakvöld Extra.

Kristófer meiddist á hnéi í lokaleik úrslita á síðasta tímabili, en samkvæmt honum mun hann hafa farið í aðgerð á báðum hnjám í sumar þar sem hitt hafi einnig verið farið að gefa sig. Segir hann að hann verði farinn að æfa á fullu nú fyrir jól og gerir hann ráð fyrir að verða kominn á fullt með Íslandsmeisturunum í janúar.

Kristófer hefur í fimm skipti orðið Íslandsmeistari með KR og nú síðast Val. Þá hefur hann í þrígang verið valinn besti leikmaður deildarinnar, 2018, 2019 og 2022.

Fréttir
- Auglýsing -