Marist Madness hátíðin hefst á morgun en það er árleg hátíð Marist háskólans fyrir upphaf körfuboltatímabilsins. Við eigum okkar fulltrúa hjá Marist, þau Kristinn Pálsson og Lovísu Henningsdóttur og þau ætla að deila deginum með okkur á Snapchat.
Marist Madness er mikil skemmtun en þar geta nemendur skráð sig til keppni um að vinna tugi þúsunda dala með því að skjóta frá miðjum velli í átt að körfunni. Í fyrra vann einmitt nemandi $10.000 fyrir að hitta úr sínu skoti.
Fylgist með á Snapchat: Karfan.is
Fylgist með Marist Madness á Facebook