Valur hafði betur gegn Njarðvík í oddaleik undanúrslita Subway deildar karla í kvöld, 85-82. Valur fer því í úrslitin þriðja árið í röð, en þar munu þeir mæta Grindavík.
Karfan ræddi við Kristinn Pálsson leikmann Vals eftir leik í N1 höllinni. Í úrslitunum mun Valur mæta Grindavík, en Kristinn lék fyrir þá frá 2020 til 2022.