11:02
{mosimage}
(Monique Martin var stigahæst í sýnu nýja liði)
Fyrsti leikur Reykjavíkurmóts kvenna var í gær en þá mættust KR og Ármann/Þróttur í DHL-Höllinni. Lokatölur voru 98-28 fyrir KR enda hafði liðið mikla yfirburði. Stigahæst hjá KR var nýji erlendi leikmaður liðsins Monique Martin með 29 stig. Hjá Ármanni skoraði Bryndís Gunnlaugsdóttir 12 stig.
Reykjavíkurmótið heldur áfram í kvöld en þá mætast Fjölnir og Valur í Grafarvoginum kl. 20:00.
Dagskrá Reykjavíkurmótsins:
4. október kl. 20:00 Fjölnir-Valur í Grafarvogi
6. október kl. 16:00 Valur-Ármann/Þróttur í Vodafone-höllinni
6. október kl. 16:30 Fjölnir-KR í Grafarvogi
10. október kl. 19:15 Ármann/Þróttur-Fjölnir í Laugardalshöllinni
11. október kl. 19:15 Valur-KR í Vodafone-höllinni
mynd: kr.is