Í frétt sem birtist á heimasíðu KFÍ í dag undir fyrirsögninni ,,Síðbúnar fréttir frá KFÍ” fá KR-ingar sneið senda vegna frammistöðu þeirra manna á KR-TV. Í fréttinni er einnig greint frá því að KFÍ hafi bætt breskum leikmanni í hópinn sem heitir Samuel Toulwase.
Þegar komið er í síðstu greinarskil fréttarinnar segir eftirfarandi:
,,Í restina má alveg koma að útsendingum KR-TV. Þeir herrar ættu að einbeita sér meira að því að segja frá leiknum og hans tilgang í stað þess að vera með dónaleg ummæli og annað sem á ekkert skylt við okkar frábæru íþrótt.”