spot_img
HomeFréttirKR sigur í Grindavík

KR sigur í Grindavík

18:04

 

{mosimage}

 

 

Grindvíkingar máttu sætta sig við tap á heimavelli gegn KR  í gær, 78-89, í Iceland Express-deild karla.

Heimamenn byrjuðu betur þar sem Þorleifur Ólafsson gerði 14 stig í fyrsta leikhluta og voru mest með 12 stiga forystu en KR minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks og var staðan 47-42 þegar liðin héldu inn í klefa.

Í upphafi seinni hálfleiks var sem ekkert gengi upp hjá Grindvíkingum á meðan KR-ingar léku á als oddi. Sóknarleikur þeirra var í molum og náðu ekki að finna glufur á sterkri vörn gestanna.

KR náðu forystunni áður en langt um leið og unnu öruggan sigur 78-89.

 

Steven Thomas gerði 27 stig í liði Grindavíkur og tók 15 fráköst en hjá KR var það Jeremiah Sola sem setti niður 29 stig.

 

Frétt og mynd af www.vf.is

 

Fréttir
- Auglýsing -