spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaKR semur við þrjá leikmenn

KR semur við þrjá leikmenn

KR hefur samið við þrjá uppalda leikmenn sína til næstu tveggja ára, en þær eru Guðný Ragnarsdóttir, Kaja Gunnarsdóttir og Kristrún Edda Kjartansdóttir. Allar eru þær fæddar 2008 og hafa þær verið lykilleikmenn í sínum yngri flokkum ásamt því að hafa verið í yngri landsliðum Íslands.

“Guðný, Kaja og Kristrún eru allar gríðarleg efni og stelpur sem ég hef haft þann heiður að þjálfa í yngri flokkunum síðustu ár. Þær stigu sín fyrstu skref í meistaraflokknum í fyrra og stóðu sig mjög vel, ásamt því að vera bakbeinið af stórkostlegu 10. flokks liði sem urðu bikarmeistarar í fyrra. Ég hlakka gríðarlega mikið til að vinna með þeim áfram og er spenntur að sjá framþróun þeirra í íþróttinni á næstu árum.” Segir Hörður Unnsteinsson þjálfari meistaraflokks.

Fréttir
- Auglýsing -