Lið KR hefur tryggt sér til starfa næsta tímabil í Dominosdeildinni leikmann að nafni Shawn Atupem. Shawn þessi er 25 ára gamall og útskrifaðist frá MT. St Mary háskólanum árið 2011. Shawn hefur spilað bæði á Írlandi og núna síðast í Finnlandi með liði Salon Vilpas þar sem hann var að skora 16 stig og hirða um 7 fráköst á leik. Eftir ansi mögurt “kana ár” hjá þeim KR í fyrra þá vona þeir svo sannarlega að þessi eigi eftir að hjálpa liðinu betur á komandi tímabili.