spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaKR og Stjarnan áttust við í Ásgarði

KR og Stjarnan áttust við í Ásgarði

Bónus deildar lið Stjörnunnar hafði betur gegn fyrstu deildar liði KR í æfingaleik í Ásgarði í kvöld, 96-73, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf deildarkeppninnar sem hefst í næstu viku.

Þrátt fyrir að sigur heimakvenna í Stjörnunni hafi verið nokkuð öruggur undir lokin má segja að KR hafi tekist ágætlega til að halda þessu í leik lengi vel framan af. Aðeins munaði 3 stigum á liðunum eftir fyrsta fjórðung og 8 stigum í hálfleik. Stjarnan bætir svo enn við forskot sitt í upphafi annars hálfleiks og halda þær í þá forystu allt til enda, en niðurstaðan var að lokum nokkuð öruggur 23 stiga sigur þeirra.

Stigahæst fyrir Stjörnuna í leiknum var Kolbrún María Ármannsdóttir með 24 stig og Denia Davis Stewart bætti við 21 stigi.

Fyrir KR var Anna María Magnúsdóttir stigahæst með 19 stig. Henni næst var Markyia Mccormick með 13 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -