KR hafði betur gegn Hetti í fyrsta leik 8. umferðar Bónus deildar karla, 85-88. Eftir leikinn er KR með 8 stig um miðja deild á meðan Höttur er einum sigurleik fyrir neðan með 6 stig.
Það voru gestirnir úr Vesturbænum sem leiddu leik kvöldsins nánast frá upphafi til enda. Forysta þeirra var þó oftar en ekki fyrir innan 10 stigin og tókst Hetti aðeins að snúa taflinu sér í vil undir lok þriðja fjórðungs. KR náði þó strax í upphafi þess fjórða að gera forystuna sína á nýjan leik og undir lokin sigldu þeir svo sterkum sigur í höfn, 85-88.
Atkvæðamestur heimamann í leiknum var Nemanja Knezevic með 15 stig, 19 fráköst og Justin Roberts bætti við 25 stigum og 4 fráköstum.
Fyrir KR var Linards Jaunzems atkvæðamestur með 25 stig og 10 fráköst. Honum næstur var Nimrod Hilliard með 20 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta.