KFÍ mætir í DHL-Höllina í kvöld þegar Domino´s deild karla rúllar í gang á nýjan leik. Ísfirðingar leika þar gegn KR sem verður án erlendra leikmanna í leiknum. Þetta staðfesti Böðvar Guðjónsson formaður KR við Karfan.is í dag.
Fyrr á tímabilinu lét KR Danero Thomas fara og nú um áramótin hélt Keegan Bell sína leið úr vesturbænum. Nýjir leikmenn hafa ekki verið fengnir í raðir KR fyrir leikinn í kvöld en eflaust er þess þó skammt að bíða að ferskir fætur mæti þangað.