spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaKR lagði Fjölni í Dalhúsum

KR lagði Fjölni í Dalhúsum

KR hafði betur gegn Fjölni í æfingaleik í Dalhúsum í gær, 103-107, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir deildarkeppnina sem hefst um næstu mánaðarmót. KR verða þá nýliðar í Bónus deild karla í fyrsta skipti á meðan að Fjölnir mun etja kappi í fyrstu deild karla.

Stigahæstur heimamanna í leiknum var Sigvaldi Eggertsson með 34 stig. Honum næstur var Arnþór Freyr Guðmundsson með 17 stig.

Fyrir KR var það Dani Koljanin sem dró vagninn með 25 stigum og Vlatko Granic bætti við 20 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -