spot_img
HomeBónus deildinKR hvetur stuðningsmenn sína til að standa saman - Selja miða og...

KR hvetur stuðningsmenn sína til að standa saman – Selja miða og opna safn KRTV á meðan samkomubanni stendur

KR hefur ákveðið að opna sjónvarp sitt, KRTV á meðan að samkomubanni stendur. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er þetta gert til þess að stytta fólki stundir.

Þá hvetja þeir í leiðinni stuðningsfólk sitt til þess að standa saman og hafa hrundið af stað miða og hamborgarasölu fyrir leiki í úrslitakeppninni sem aldrei fara fram.

Frekari upplýsingar er hægt að sjá í tilkynningu þeirra hér fyrir neðan.

Tilkynning:

Stöndum Saman – Sláum aðsóknarmet í DHL-höllina!

Í ljósi þess að úrslitakeppnin hefur verið blásin af og KKD KR orðið fyrir verulegum tekjumissi þá ætlum við að slá aðsóknarmetið í DHL-Höllinni með því að selja miða á leik sem mun ekki fara fram eins og gefur að skilja. Aðsóknarmetið er 2500 manns og það er von deildarinnar að sem flestir taki þátt í þessu verkefni og saman slái það met og um leið styrki við starf og rekstur deildarinnar.

Það eru 2 möguleikir í boði með því að smella hér:

1) Burger, drykkur og miði á leikinn 4000kr
2) Miði á leikinn 2500 kr

Einnig að taka fram að hægt er að millifæra á reikning KKD KR – Banki: 0137-26-45, kt. 510987-1449.

Það er sárt að engin úrslitakeppni fari fram í ár en þar eigum við KR-ingar margar góðar minningar. Til að rifja upp góðar minningar þá mun KRTV vera opið á meðan á samkomubanni stendur. Þar er fjársjóður leikja og svo sannarlega gaman að fara aftur í tímann og skoða þessa leiki.

ÁFRAM KR og kærar þakkir fyrir stuðninginn!

Fréttir
- Auglýsing -