spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaKonrad Tota tekur við Hrunamönnum "Hlakka til að hjálpa félaginu að ná...

Konrad Tota tekur við Hrunamönnum “Hlakka til að hjálpa félaginu að ná nýjum hæðum”

Fyrstu deildar lið Hrunamanna hefur samið við Konrad Tota um að þjálfa liðið á komandi tímabili.

Konrad er fyrrum leikmaður og þjálfari sem verið hefur á Íslandi áður, meðal annars með Þór Akureyri og Skallagrími, en síðan hann var hér síðast hefur hann verið að þjálfa og spila með liðum í Þýskalandi og á Nýja Sjálandi.

Samkvæmt félaginu mun Konrad mæta til starfa í Ágúst, en hann tekur við starfinu af Árna Þór Hilmarssyni sem hefur verið með liðið síðustu ár.

Tilkynning:

Hrunamenn og Konrad Tota hafa skrifað undir samning um að hann taki við þjálfun meistaraflokks karla nk. tímabil. Konrad er kunnugur staðháttum á Íslandi en hann hefur leikið og þjálfað áður á Íslandi með bæði Þór Ak. og Skallgrími.

Síðan Konrad kvaddi Ísland hefur hann m.a. þjálfað og spilað í Þýskalandi og á Nýja-Sjálandi. Konrad segist aðspurður um þetta nýja verkefni: ,,I’m very happy for this great opportunity. My goal is to develop versatile, defensive minded players with a winning mentality. I’m looking forward to arriving and helping Hrunamenn reach new heights!”

Fréttir
- Auglýsing -